Ferill 213. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 213 . mál.


Nd.

438. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 86/1988, um Húsnæðisstofnun ríkisins, sbr. lög nr. 76/1989 og nr. 70/1990.

(Eftir 3. umr. í Ed., 20. des.)



1. gr.


     5. mgr. 13. gr. laganna falli brott.
     20. 22. gr. laganna falli brott.
     7. mgr. 30. gr. laganna falli brott.

2. gr.


     Í stað 2. mgr. 94. gr. laganna koma tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
     Eigi skal greiða stimpilgjald af lánssamningum sem Húsnæðisstofnun ríkisins gerir við framkvæmdaraðila vegna byggingar eða kaupa á félagslegum íbúðum. Skuldabréf, sem framkvæmdaraðili gefur út í verklok til Húsnæðisstofnunar ríkisins, eru einnig stimpilfrjáls.
     Eigi skal greiða stimpilgjald af skuldabréfum sem kaupendur félagslegra íbúða gefa út til Húsnæðisstofnunar ríkisins. Þó skal greiða stimpilgjald við kaup á almennum kaupleiguíbúðum.

3. gr.


     Í stað orðanna „skv. 2. mgr. 102. gr.“ í 100. gr. laganna komi: skv. 101. gr.

4. gr.


     Lögin öðlast þegar gildi. Fjármálaráðherra er heimilt að endurgreiða stimpilgjald af skjölum þeim sem getur í 2. gr. og stimpluð voru eftir 1. júní 1990.